top of page

Könnunin mín

Ég ákvað að gera könnun og ég beindi henni sérstaklega að konum landsins þar sem ég las að svefntruflanir hafa meiri áhrif á kvenmenn heldur en karlmenn. Þar sem ég var að taka þessa svefntruflanakönnun langaði mig að sjá hvort fólk vissi hvað að skýrdreyma er og hversu margir hafa gert slíkt. Hér eru niðurstöðurnar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

                        

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Næst hafði ég nokkrar skriflegar spurningar og sú fyrsta var ,,Er einhver sérstök ástæða fyrir þessum svefntruflunum?“. Algengustu svörin voru: Nei, kvíði eða aðrir geðrænir sjúkdómar og það sem kom mér mest á óvart gigt. Þetta kom mér á óvart vegna þess að 56.3% þáttakanda voru á aldursbilinu 14-17, og aðeins 3.4% voru yfir 30. Það þýðir að gigt er algengari en ég hélt hjá yngri konum. En svo fór ég að spyrja út í skýrdrauma.

 

 

 

 

 

 

 

 

                 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Því næst spurði ég ef þau hefðu æft sig til þess að skýrdreyma hvað þau hefðu þá gert. Það hjálpaði mér mikið við skýrdrauma dagbókina mína og rannsóknina. Flestir sögðust hafa farið eftir leiðbeiningum af netinu. Þ.e. myndbönd af netinu og/eða raunveruleika prófun, eins og ég fjalla um í skýrdraumaköflunum.

Næsta spurning var í raun til þess að hjálpa mér við rannsóknarspurninguna þar sem ég spurði ,,Hvernig heldur þú að skýrdraumar tengist sálfræði?“. Þó það hafi verið mörg góð svör var besta svarið sem ég fékk „Með því að stýra draumi þá æfiru þig í að takast á við raunveruleikann“.

Ég vildi þó ekki bara fjalla um drauma og spurði því „Heldur þú að dáleiðsla tengist sálfræði?“ Svörin við þessari spurningu voru ekki mikið fjölbreyttari. Það var algengast að fólk sagði já eða nei, en mikill meiri hluti sagði já. Það hefði verið gaman að fá svör eins og hvernig fólk héldi að þetta tvennt tengdist en ég er afar ánægð með það hversu margir svöruðu könnuninni.

Laugalækjarskóli

Maí-júní 2016

Lokaverkefni

bottom of page