
Dáleiðsla
Þegar við hugsum um orðið, eða hugtakið, dáleiðsla sjáum við oft fyrir okkur þessa dularfullu og dáleiðandi fígúru sem kvikmyndir, sjónvarpsþættir og bækur hafa búið til. Sú dularfulla fígúra er sögð búa yfir galdramætti og geti lesið hugsanir fólks en í raun er dáleiðsla miklu einfaldari en svo. Stór hluti dáleiðslu byggist á tillögum, áhrifagirni og einbeitingu. Fyrstu gögn um dáleiðslu eru frá um seinni hlutar 18.aldar. Anton Mesmer og fleiri gerðu dáleiðslu vinsæla. Hins vegar var hún aðeins notuð þá til skemmtunar í hirðum konunga um Evrópu. Dáleiðsla er ekki gerð af “hugarstjórnun“ og það er ekki “svefn“. Þvert á móti byggist dáleiðsla fyrst og fremst á samvinnu og sefnæmi þess sem verið er að dáleiða. Dávaldur breytir þá einbeitingar- og athyglispunkti manneskjunnar sem verið er að dáleiða. Dávaldurinn veitir ekki mikið meira en leiðbeiningar eða þjálfun. Margir þurfa ekki einu sinni á dávaldi að halda. Oft, dagsdaglega, förum við í svokölluð dáleiðslu ástönd, í raun án þess að við vitum af því. En það kemur hins vegar til móts við spurninguna „geta allir verið dáleiddir?“ Sú spurning á betur við í sviðsdáleiðslu, en um 30% fólks getur verið dáleitt af dávaldi. En 100% fólks upplifir einhvers konar gerð dáleiðslu á hverjum degi. Það gæti jafnvel verið að við lifum mestan hluta lífs okkar, ef ekki allan, í mismunandi transástöndum. Þá kenningu setti sálfræðingurinn Stephen Wolinsky fram í bók sinni „Trances People Live“. Wolinsky tók einnig eftir því að hið svo kallaða „deep trance phenomena“ eða DTP, sem vanalega er trúað að sé einstakur hluti dáleiðslufundar með sérfræðingi, sé viðstatt í gegnum mest af okkar daglega lífi. Að “venjulega“ meðvitundin okkar er gerð út frá þessum “phenomenum“ og að við skiptumst á að vera í DTP og að vera ekki í DTP allan daginn út og inn. En hvað eru DTP? Sem dæmi um þetta má nefna aldursframskrið. Það er þegar við sjáum okkur fyrir okkur í framtíðinni, lifandi því lífi sem við óskum okkur til. Eins og að hafa grennst eða að við erum hætt að reykja. Svo er líka til aldursafturför. Það er þegar við endurlifum atvik sem gerðist á okkar fyrri árum. Dálæknar nota þetta til þess að breyta tilfinningum þínum í kringum eitthvað ákveðið atvik sem olli miklu áfalli. Annað dæmi um DTP er tímaafmyndun, þá skynjum við tímann sem að hann sé að fara hægar eða hraðar. Til eru mörg dæmi um DTP og þessi voru fá af þeim. Flest öll transástöndin í DTP notfæra sálfræðingar og dálæknar sér í dálækningum. En hvað eru dálækningar og klínísk dáleiðsla?