

Hvað hefur áhrif á drauma?
Til eru mjög margar hugmyndir um það hvað hefur áhrif á draumana okkar. Sumir vísindamenn vilja meina að bara það t.d. í hvernig stellingu við sofum hefur áhrif á hvað okkur dreymir. Eftir margar rannsóknir hafa niðurstöður líka sýnt að ef þú horfir á svart og hvítt sjónvarp í dágóða stund áður en þú ferð að sofa, dreymir þig svarthvítan draum. Annað eins og lyktir og hljóð geta líka haft áhrif á þig og drauma þína. Þýskir rannsóknarmenn kynntu sér áhrifin af ytri lyktum í draumum. Þeir framkvæmdu tilraunir sínar þannig að þeir létu þáttakendur á REM stiginu finna góða lykt og slæma lykt. Góðu lyktina þá af rósum en þá slæmu af úldnum eggjum. Ef við finnum góða lykt þegar við erum vakandi hefur það góð áhrif á líðan okkar og það sama fylgir með drauma okkar og svefn. Svo hafa aðrir haldið því fram að sálfræðileg líðan okkar hafi áhrif á liti í draumum okkar. Að ef draumar okkar eru gráir eða svarthvítir séum við þunglynd þegar við erum vakandi. Ég er þó ekki alveg sammála þeirri kenningu. Það er erfitt að rannsaka hvernig draumar eru, hvað þá hvernig þeir eru á litinn. Ég get ekki alveg ímyndað mér hvernig grunn sú rannsókn hefur fyrir utan einstaklinga sem segjast muna eftir draumum sínum, sem við höfum nú þegar ákveðið að sé erfitt að gera. Það sem meira er hafa sumir sagt að líðan okkar hafi áhrif á það hvernig veðrið er í draumum okkar. En aftur finnst mér þetta ólíklegt þar sem það er erfitt að mæla drauma. Annað sem hefur áhrif á draumana okkar er matur. Sérstaklega sterkur matur og ostur. Það gerir okkur kleift að muna meira eftir draumum okkar heldur en vanalega. Það er bara einfaldlega vegna þess að sterkur matur og ostur, sérstaklega, veldur meltingatruflun. Sú truflun veldur óróleika sem gefur þér möguleika á að muna eftir draumnum þínum. Tónlist hefur einnig mikil áhrif á drauma okkar. Stundum heyrum við tónlist eða hljóð á meðan við sofum og setjum það í drauminn okkar á þann hátt sem er rökrétt fyrir undirmeðvitundina. Þér gæti t.d. dreymt að þú sért á tónleikum en í raun heyrirðu bara einhvern í kringum þig spila á gítar. Gerð var rannsókn þar sem þáttakendur voru sumir látnir hlusta á tónlist og aðrir ekki á meðan þeir sváfu. Í ljós kom að mikill munur var á svefnum þeirra, þ.e.a.s. heilavirkninni. Þegar þáttakendur vöknuðu sögðu þeir frá því að þeir hefðu heyrt tónlist í draumum sínum eða að draumarnir hefðu eitthvað með tónlist að gera. Rannsóknir hafa sýnt fram á það að hröð og uppsveiflutónlist hefur öðruvísi áhrif á drauma en hæg og róleg tónlist. Þá getur hraða tónlistin komið fyrir myndum í höfðinu á einstakling sem hefur sterk tilfinningaleg áhrif á hann. Draumarnir geta verið reiðir eða spennandi. Draumar þar sem róleg tónlist er spiluð virðast mikið rólegri, eins og búast mætti við. Þetta kemur mér þó ekkert á óvart þar sem tónlist hefur mikil áhrif á heilabylgjurnar.