
Skýrdrauma tilraun mín
Mig langaði mjög til þess að gera tilraun með það hvort ég gæti skýrdreymt ef ég æfði mig í því. Ég hafði einu sinni skýrdreymt áður en ég gerði þessa tilraun og mig langaði að sjá hvort ég gæti endurupplifað þann draum. Ég fór því og las mig til á netinu um það hvernig ég gæti skýrdreymt og þar var algengasta leiðin að nota raunveruleikasannanir eins og t.d. að klípa sig í handlegginn, horfa á klukku, horfa svo burt og svo aftur á klukkuna. Í draumi myndi klukkan annað hvort vera óskýr eða sýna annan tíma en var þegar þú horfðir í fyrra skiptið. Fyrstu vikuna var ég bara að venja mig á það að gera þessar prófanir og hafði skrifað lítið, svart x á höndina á mér sem ég horfði reglulega á yfir daginn. Ástæðan fyrir x-inu var því þegar þú ert í draum þá er x-ið ekki lengur á höndinni og þá áttaru þig á því að þú sért í draumi. Ég tók lítil skref í einu og eftir þrjá daga tókst mér að dreyma þannig að ég vissi að ég væri í draumi en ég gat hins vegar ekki stjórnað draumnum. Ég fór ekki að geta stjórnað draumunum fyrr en eftir eina og hálfa viku og það var alveg svakalega frelsandi tilfinning. Ég gat gert hvað sem er og gat flogið út um allt. Það hjálpaði mér líka mjög að halda stöðugri “svefndagskrá“. Þ.e. fara að sofa á ákveðnum tíma og reyna að vakna á sama tíma alla daga. Ég mæli eindregið með þessari reynslu og með þessum æfingum. Ég held, útfrá minni eigin reynslu, að skýrdraumar gætu verið notaðir í sálfræði vegna þess að þú getur leitað svara í meðvitundarlausu hugarástandi því það eru enginn mórall sem heldur þér frá sannleikanum.