

Skýrdraumar
Þegar okkur dreymir ræður undirmeðvitundin, en sumir kunna ákveðna tækni sem kallast að skýrdreyma, sem leyfir manni að stjórna því sem gerist. Að skýrdreyma þýðir að þú áttir þig á því að þú sért að dreyma og getur þá ákveðið og stjórnað því sem þú gerir í draumum þínum. Á ensku heitir þetta “lucid dreaming“ en lucid þýðir einmitt að eitthvað sé skýrt. Það er notað orðið “skýr“ vegna þess að þegar flestum dreymir eru draumarnir oft óskýrir, skrýtnir eða ekki í lit. Skýrdraumar eru hins vegar mjög skýrir, en ekki bara það, þeir eru líka stjórnanlegir. Þegar við erum föst í martröð getum við stoppað hana og sagt „nei, þetta er minn draumur. Ég ræð.“. Sumir hafa jafnvel getað spurt martröðina sína hvers vegna hún væri þarna, eða þá hvað hún táknaði, og leyst þannig úr sínum eigin vandamálum. Margir þurfa ekki að æfa sig til þess að skýrdreyma. Sumir fæðast með þennan eiginleika að geta skýrdreymt. Þó þurfa nokkrir að æfa sig og til eru margar leiðir til þess að reyna að átta sig á því að þú sért í draumi og þær eru ekki svo flóknar. Þá má nefna sem dæmi að yfir daginn skaltu prófa að sjá hvort þú sért vakandi, þó þú kannski vitir það. Horfðu á klukku og sjáðu hvað klukkan er, líttu svo frá og horfðu svo aftur á hana. Í draumum mun tíminn breytast eða þú sérð ekki klukkuna greinilega. Þú getur líka reynt að klípa þig stöðugt yfir daginn. Í draumi myndiru ekki finna fyrir sársaukanum. Ein algengasta leiðin til að skýrdreyma er að segja þér rétt áður en þú ferð að sofa að þú ætlir að skýrdreyma. Ef þú segir það nógu oft geturðu munað það í svefni. Ég ætla einmitt að gera tilraun og prófa mismunandi leiðir til þess að skýrdreyma og sjá hvort það virki og hver leiðanna virkar þá best. Forn-Grikkir og Forn-Egyptar voru vísindamenn síns tíma og voru þeir einu sem voru nokkuð að rannsaka svefn og drauma, sem vitað er um. Hins vegar eru fyrstu ritun um skýrdreymi, sem vitað er um, frá um 1000 f.k. og það voru upanisjadritin[1]. Snemma á öldum breiddust þessi indversku áhrif til fjallahéraðanna í Tíbet, þar sem andatrúarhefðin frá Bonpo heldur enn fram að skýrdraumar hafi verið notaðir í þeirra hugleiðslu í yfir 12000 ár.
[1] Hindúarit um hugleiðslu, heimspeki og máltæki.