top of page

Svefn truflanir

Svefnkvilli einn, sem kallast næturhræðsla, lýsir sér þannig að einstaklingur öskrar, er haldin hrikalegri hræðslu og ber út í loftið á meðan hann sefur. Næturhræðsla verður oftast í Delta svefni eða á 3. og 4. stigi svefns. Líkt og að ganga í svefni eru næturhræðslur taldar svefntruflanir – óþráður viðburður sem verður á meðan þú sefur. Næturhræðsla er algengari í börnum heldur en fullorðnum en til eru dæmi um fullorðna sem þjást af þessum sjúkdómi. Einn svona þáttur getur endst frá sekúndum til nokkurra mínúta en geta verið allt að hálftíma langir. Um 1-6% barna þjást af næturhræðslu en ólíkt martröðum muna þau ekki eftir því sem gerðist. Á meðan því stendur er þetta skelfileg og hræðileg upplifun en daginn eftir, þegar þau vakna, muna þau ekki einu sinni að þetta hafi gerst. Annað sem einkennir næturhræðslu er það að það er erfitt að vekja einstaklinginn sem stendur í þessu og ef þér skyldi takast að vekja hann verður hann mjög ruglaður og veit ekki hvað er að gerast í kringum hann.  Til eru mjög margir svefnkvillar og svefntruflanir en ekki mörg þeirra hafa nokkuð með martraðir að gera. Það er margt sem getur truflað svefn. Streita er algengasta orsök svefntruflana. Sú streita getur tengst námi eða starfi, vandamálum innan fjölskyldunnar, hjónabandserfiðleikum, alvarlegum veikindum eða andláti í fjölskyldunni. Í þessum tilfellum eru svefntruflanir aðeins tímabundnar og standa aðeins yfir meðan erfiðleikarnir eru sem mestir. Þó er hætta á því ef ekkert er gert að svefntruflanirnar vari í lengri tíma, þótt upphaflega orsökin sé ekki lengur til staðar. Þess vegna er ráðlegt að hafa samband við lækni ef svefntruflanir vara lengur en í viku. [AH1] Áfengi og koffín geta haft óæskileg áhrif á svefn og svefngæði. Sama gildir um óreglulegan svefntíma og líkamlega áreynslu stuttu fyrir svefn. Reykingar trufla svefn. Þeir sem reykja mikið ganga í gegnum fráhvarfseinkenni nikótíns yfir nóttina.

 

Laugalækjarskóli

Maí-júní 2016

Lokaverkefni

bottom of page