

Insomnia/Svefnleysi
Í dag sefur fólk 20% minna en það gerði fyrir 100 árum. Ég tel líklegast að ástæðan fyrir því sé að fólk hefur meira í dag til þess að dunda sér við. Við höfum sjónvörp, síma, tölvur, rafmagn og gerviljós til þess að halda fyrir okkur vöku. En svo eru líka svefntruflanir til og ein algengasta svefntruflunin heitir Insomnia. Um 30% af Bandaríkjumönnum eru veikir með insomniu og yfir 50% af fólki yfir sextugt þjáist af Insomniu. Það er algengara fyrir konur að þjást af Insomniu. Um 90% af fólki sem er þunglynt þjáist af Insomniu og yfir 10.000.000 manns í Bandaríkjunum þarf á svefnlyfjum að halda. Insomnia er líklegast ættgengur sjúkdómur, þar sem sjúklingar sem hafa hann í dag eiga það í ættum sér, þó sjúkdómurinn eigi sér margar aðrar orsakir. Insomnia er sjúkdómur þar sem þú átt annað hvort erfitt með að sofna, erfitt með að halda þér sofandi eða hvoru tveggja. Dæmi um orsakir geta verið að eldast, andlegir sjúkdómar, líkamlegur sársauki, mataræði og kyn þitt. Þegar þú eldist breytist svefn munstrið þitt og það getur truflað svefninn þinn og hvernig þú sefur. Andlegir sjúkdómar hafa mikil áhrif á svefn þinn þar hugurinn þarf að vera kominn í ró við svefn. Ef að hugurinn er órólegur eins og hann verður við andlega sjúkdóma er erfiðara fyrir þig að sofna. Eins með líkamlegan sársauka. Ef líkaminn er órólegur er erfitt að sofna og komast í ró. Hvað þú borðar hefur áhrif á gæði svefns þíns. Sumur matur er góður fyrir svefn en annar ekki. Koffín hefur slæm áhrif á svefn munstrið þitt sem gæti endað með Insomniu. Það af hvaða kyni þú ert og hvernig það hefur áhrif á svefn þinn er ekki alveg 100% víst en staðreyndin er sú að konur verða meira fyrir svefntruflunum og svefnsjúkdómum. Það gæti verið vegna hormónabreytinga í tíðahringnum. Það er mikilvægt að passa uppá þetta vegna þess að svefn er gríðarlega mikilvægur fyrir andlega og líkamlega heilsu okkar.