top of page

Draumar

Það er lítið vitað um drauma eða hvað þeir í raun og veru eru, en dæmigert er að þig dreymi um 2 klukkustundir, u.þ.b. 5 drauma á nóttu. Við vitum að okkur dreymir á REM stiginu en það vissum við ekki fyrr en eftir 1953. Spendýr og fuglar hafa sýnt merki um REM svefn en skriðdýr og dýr með kalt blóð ekki. Þýðir það þá að spendýr og fuglar dreyma en skriðdýr og önnur kald-blóða dýr ekki? Oft þegar hundar sofa sjáum við órólegar hreyfingar og stundum jafnvel gelta þeir upp úr svefni. Alveg eins og algengt er að fólk tali upp úr svefni. Vísindamenn hafa dregið þá ályktun að dýr með heitt blóð dreyma en dýr með kalt blóð dreyma ekki. En hver er ástæðan fyrir því að þetta er svona óvíst? Það er líklega vegna þess að við gleymum draumum okkar. Vísindamaðurinn Sigmund Freud setti fram kenningu í bók sinni, The Interpretation of Dreams, sem segir frá því að allt sem gerist í draumum okkar séu óskir sem við viljum uppfylla. Þ.e.a.s. þegar við munum ekki eftir sumum hlutum úr draumum okkar sé það leið heilans til þess að útiloka óskir eða langanir sem við erum einfaldlega ekki tilfinningalega hæf fyrir. Hann segir líka frá því að við gætum gleymt draumum okkar vegna þess að þeir valdi of miklu áfalli eða skaða. Aðrir vísindamenn hafa lagt fram aðrar kenningar sem eru ekki eins sálfræðilegar. Sumir segja t.d. að við gleymum draumum okkar einfaldlega vegna þess að þeir séu ekki nógu áhugaverðir. Það hvernig við getum gleymt tveimur klukkustundum af draumum á hverri nóttu er til umræðu og margar skoðanir hafa verið settar fram. En þá er ennþá verið að skoða, hvað draumar eru í raun og veru. Við vitum að draumar koma fram í REM svefni, en hvernig? REM svefn byrjar með heilaboðum frá svæði í neðsta hluta heilans sem kallast brú[1]. Þessi merki ferðast til hluta heilans sem kallast heilastúka og þaðan til annars hlutar sem kallast cortexer heilabörkur[2]. Brúin sendir einnig boð sem slökkva á taugafrumunum í mænunni sem gerir það að verkum að vöðvar lamast tímabundið. Skyldi eitthvað trufla þessi merki fær það fólk til þess að leika drauma sína eða það sem er að gerast í draumum þeirra. Sumir vísindamenn telja að draumar séu leið fyrir cortex-ið til þess að botna óreglulegu merkin sem það fær á meðan REM svefni stendur og búi þannig til “sögu“ úr brotakenndum heilaboðum. Aðrir vísindamenn telja einnig að í REM svefni styrkjast nýjar minningar og tengjast þeim eldri og að draumar stafi einfaldlega af því að heilinn sé að flokka nothæfar og ónothæfar minningar.

 

 

 

 

 

[1] Sá hluti heilans sem tengir saman heilahvel, mænukylfu og litla heila.

[2] Sá hluti heilans sem ber ábyrgð á hugsun, lærdómi og skipulagðri hugsun.

Laugalækjarskóli

Maí-júní 2016

Lokaverkefni

bottom of page