top of page

Niðurstöður

Eftir langa rannsókn og margar tilraunir komst ég að eftirfarandi. Dáleiðsla tengist og er notuð í sálfræði. Skýrdraumar tengjast sálinni en ekki beint sálfræði. Þ.e.a.s. Skýrdraumar geta verið notaðir til þess að finna út úr erfiðleikum á meðvitundarlausu stigi og hjálpað til við andleg vandamál. Ég velti því mikið fyrir mér hvort skýrdraumar verði notaðir í framtíðinni í sálfræði þó ég geti ýmindað mér að sálfræðingar bendi sjúklingum á að prófa skýrdrauma til aðstoðar við sálfræði meðferðina. Dáleiðsla, hins vegar, er notuð í sálfræði meðferðum og þá til þess að t.d. hjálpa að hætta að reykja, grenna sig eða þá til dæmis til þess að takast á við sviðskrekk. Dáleiðslan er þó ekki mjög algeng og oft hluti af einhverri annarri meðferð og notuð til þess að hjálpa til. En eitt er víst að dáleiðsla í sálfræði og á sviði er alls ekki sú sama. Á sviði er þetta notað til skemmtunar og næstum niðurlægingar en í klínískri dáleiðslu er þetta notað til þess að hjálpa fólki. Einnig er ákveðin tegund af dáleiðslu notuð í sviðsdáleiðslu sem virkar ekki á alla, eða bara um 30% fólks. Það er tillögun og áhrifagirni. En eins og ég segi í dáleiðslutextanum mínum verða allir fyrir nokkurs konar dáleiðslu því orðið dáleiðsla er mikið víðara hugtak en margir halda, því það á við svo mikið af mismunandi hugarástöndum.

Niðurstöður mínar úr tilraunum mínum með skýrdrauma voru jákvæðar en þær voru að ég gat skýrdreymt eftir að hafa fylgt leiðbeiningum og hugmyndum sem ég fann á netinu eftir 4-5 daga. Meira um það má sjá í rannsóknarkaflanum mínum um skýrdrauma.

Út frá könnuninni má sjá það að konur verða mikið fyrir svefntruflunum af mismunandi ástæðum en algent var að ástæðan á bak við það væri kvíði og annars konar andleg vandamál. Það segir mér að draumar og svefn tengist einnig sálfræði á þennan hátt. Andleg vandamál tengja þau saman. Þetta fannst mér mjög áhugavert. Fólk sem tekst á við andleg og geðræn vandamál þarf á svefni að halda og mér finnst mikilvægt að fólk gleymi ekki mikilvægi þess að sofa.

Eftir allar mínar rannsóknir fékk ég þessar niðurstöður og ég er mjög sátt við þær. Ég vann mikið og hart að mér og mér fannst þetta afar skemmtilegt verkefni.

Laugalækjarskóli

Maí-júní 2016

Lokaverkefni

bottom of page