
Ferli

Ferli
Í raun byrjaði ég strax að skrifa textann minn. Það hjálpaði mjög mikið að halda mér við efnið þar sem ég á það til að láta hugann reika á meðan ég les. Ég las mjög mikið af heimildum strax í fyrstu vikunni og hafði komið niður um 2500 orðum á blað við lok fyrstu vikunnar. Ég horfði einnig á mörg myndbönd og þau hjálpuðu mikið við dáleiðsluna. Ég sat og skrifaði í mjög marga daga og fór bara í eitt viðtal sem var í raun alveg nóg því þar kom fram allt það sem ég þurfti að vita. Ég tók viðtalið í næst síðustu vikunni og hélt síðan bara áfram að vinna með það. Ég byrjaði að hanna vefsíðuna eftir u.þ.b. eina og hálfa viku af því að skrifa textann og lesa mig til. Þá byrjaði ég líka að setja inn þá texta sem voru tilbúnir. Svo datt mér í hug að gera könnun í Google forms fyrir verkefnið mitt sem ég setti síðar inn á Facebook fyrir alla að taka sem vildu. Á meðan öllu þessu stóð hélt ég dagbók um draumana mína og aðferðir mínar og tilraunir til þess að skýrdreyma. Mér fannst þetta allt saman ganga afar vel og ég er sérstaklega ánægð með það hversu vel ég stóð mig að vera ein í þessu verkefni og hvað ég hélt einbeitingu við aðstæður.